Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 25. ágúst 2019 17:59
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: AC Milan tapaði fyrsta leik
Mynd: Getty Images
Udinese 1 - 0 Milan
1-0 Rodrigo Becao ('72 )

AC Milan byrjar ekki vel í ítölsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Milan sótti Udinese heims í fyrsta leik dagsins.

Gestirnir frá Mílanó spiluðu ekki vel í þessum leik og sköpuðu sér lítið. Eitt mark var skorað í leiknum og það gerði varnarmaðurinn Rodrigo Becao fyrir Udinese eftir hornspyrnu.

Mörkin urðu ekki fleiri og lokatölurnar 1-0 fyrir Udinese sem fer upp að hlið Juventus á toppi deildarinnar.

Svo sannarlega slæm byrjun fyrir Milan.

Klukkan 18:45 hefjast sex leikir.
18:45 Verona - Bologna
18:45 Sampdoria - Lazio
18:45 Spal - Atalanta
18:45 Torino - Sassuolo
18:45 Roma - Genoa
18:45 Cagliari - Brescia
Athugasemdir
banner
banner