Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 25. ágúst 2019 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þýskaland: Leipzig hélt út gegn Frankfurt
Mark og stoðsending hjá Poulsen í dag.
Mark og stoðsending hjá Poulsen í dag.
Mynd: Getty Images
RB Leipzig 2 - 1 Eintracht Frankfurt
1-0 Timo Werner ('10 )
2-0 Yussuf Poulsen ('80 )
2-1 Goncalo Paciencia ('89 )

Fyrri leik dagsins í þýsku Bundesliga er lokið. RB Leipzig tók á móti Frankfurt. Klukkan 16:00 mætast Hertha Berlin og Wolfsburg í seinni leik dagsins.

Markahrókurinn Timo Werner kom Leipzig yfir eftir tíu mínútna leik. Daninn Yussuf Poulsen átti sendinguna á Werner.

Poulsen tvöfaldaði svo sjálfur forystu Leipzig eftir undirbúning frá Emil Forsberg.

Frankfurt var líklegra aðilinn í seinni hálfleik en tókst aðeins að koma boltanum einu sinni í netið en það gerði Goncalo Paciencia, eftir undirbúning frá Timothy Chandler, þegar skammt var eftir af leiknum.


Athugasemdir
banner
banner