Byrjunarlið Breiðabliks og Fram: Enginn Fred með Fram

Ágúst Orri Þorsteinsson hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Breiðablik í bili

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fred er ekki með Fram í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jónatan Guðni Arnarsson kemur inn í lið Blika

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Orri Þorsteinsson hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Breiðablik í bili

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Flautað verður til leiks í viðureign Breiðabliks og Fram á Eikarvellinum í Kópavogi klukkan 19:15 og hafa byrjunarliðin verið opinberuð, þau má sjá hér að neðan.

Ágúst Orri keyptur í hollensku úrvalsdeildina (Staðfest)
Ólafur Ingi Skúlason neyðist til að gera tvær breytingar. Ívar Örn Árnason er í leikbanni eftir að hafa fengið sitt sjöunda gula spjald í sumar og Ágúst Orri Þorkelsson hefur verið seldur til Excelsior í Hollandi. Inn fyrir þá koma þeir Kristinn Jónsson og Jónatan Guðni Arnarsson.
Þá gerir Rúnar Kristinsson einnig eina breytingu sem hann neyðist til að gera. Fred Saraiva er ekki í leikmannahópnum eftir að hafa farið meiddur út af í síðasta leik liðsins gegn Stjörnunni. Það er mikið högg fyrir Framara en það vita allir sem fylgjast með þessari deild hvað Fred gerir fyrir Fram liðið. Kristófer Konráðsson er þá maðurinn sem kemur inn í liðið fyrir Fred.
Byrjunarlið Breiðablik
- 1. Anton Ari Einarsson (m)
- 7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
- 9. Óli Valur Ómarsson
- 14. Hlynur Freyr Karlsson
- 18. Davíð Ingvarsson
- 19. Kristinn Jónsson
- 21. Viktor Örn Margeirsson
- 22. Jónatan Guðni Arnarsson
- 23. Kristófer Ingi Kristinsson
- 29. Gabríel Snær Hallsson
- 99. Þorleifur Úlfarsson
Byrjunarlið Fram
- 22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
- 3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
- 5. Kyle Douglas Mc Lagan
- 7. Kristófer Konráðsson
- 8. Haraldur Einar Ásgrímsson
- 9. Róbert Hauksson
- 18. Ægir Jarl Jónasson
- 19. Kennie Knak Chopart (f)
- 25. Freyr Sigurðsson
- 26. Sigurjón Rúnarsson
- 29. Vuk Oskar Dimitrijevic

Fred er ekki með Fram í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jónatan Guðni Arnarsson kemur inn í lið Blika

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 20 | +46 | 51 |
| 2 | KR | 20 | +27 | 43 |
| 3 | Fram | 19 | +13 | 40 |
| 4 | Breiðablik | 19 | +6 | 30 |
| 5 | Keflavík | 20 | -3 | 28 |
| 6 | ÍA | 20 | -4 | 26 |
| 7 | Stjarnan | 20 | -10 | 24 |
| 8 | Valur | 20 | -7 | 23 |
| 9 | FH | 20 | -12 | 18 |
| 10 | ÍBV | 20 | -12 | 17 |
| 11 | KA | 20 | -14 | 16 |
| 12 | Þór | 20 | -30 | 15 |
