Fotbolti.net
24.08.26 - 22:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Palmer léttur: Horfðir þú ekki á leikinn?

Palmer léttur: Horfðir þú ekki á leikinn?
Canon

Mynd: EPA

Cole Palmer átti frábæran leik þegar Chelsea vann Fulham 3-2 í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Hann skoraði og lagði upp. Hann var mikið fjarverandi vegna meiðsla á síðasta tímabili. Hann var spurður að því eftir leikinn hvort hann væri tilbúinn fyrir tímabilið.
„Horfðir þú ekki á leikinn? Ég er bara að grínast. Ég er klár. Síðasta tímabil var erfitt, meiðsli og hvað eina en ég hef lagt aukalega á mig í sumar. Ég þekki hæfileikana mína svo ég get staðið mig svona vel," sagði Palmer.

„Ég er ekki venjulega tilfinningarík manneskja. Fólkið sem þekkir mig veit að ég læt hluti í lífinu ekki á mig fá en ég hvíldi mig í sumar, hlóð mig og er klár og hungraður."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.