24.08.26 - 21:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deildin: Fram vann í mögnuðum leik

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik 3 - 4 Fram
1-0 Davíð Ingvarsson ('6 )
1-1 Róbert Hauksson ('15 )
1-2 Haraldur Einar Ásgrímsson ('17 )
1-3 Vuk Oskar Dimitrijevic ('34 )
1-4 Kennie Knak Chopart ('44 )
2-4 Davíð Ingvarsson ('56 )
3-4 Þorleifur Úlfarsson ('59 )
Lestu um leikinn
1-0 Davíð Ingvarsson ('6 )
1-1 Róbert Hauksson ('15 )
1-2 Haraldur Einar Ásgrímsson ('17 )
1-3 Vuk Oskar Dimitrijevic ('34 )
1-4 Kennie Knak Chopart ('44 )
2-4 Davíð Ingvarsson ('56 )
3-4 Þorleifur Úlfarsson ('59 )
Lestu um leikinn
Breiðablik fékk Fram í heimsókn í mögnuðum leik á Eikarvellinum í Kópavogi í kvöld. Breiðablik náði forystunni snemma leiks þegar Davíð Ingvarsson skoraði með skoti úr teignum.
Róbert Hauksson jafnaði metin stuttu síðar og Haraldur Einar Ásgrímsson kom Fram yfir strax í kjölfarið eftir sendingu frá Róberti.
Vuk Oskar Dimitrijevic skoraði síðan þriðja mark Fram eftir rúmlega hálftíma leik. Blikar voru í vandræðum með að koma boltanum frá, Haraldur átti skot sem Anton Ari varði út í teiginn og Vuk var fljótur að átta sig og skoraði.
Kennie Chopart skoraði síðan fjórða markið með skoti fyrir utan teiginn. Anton Ari var í boltanum en tókst ekki að halda honum frá markinu.
Blikar gáfust ekki upp og Davíð skoraði sitt annað mark og annað mark Blika snemma í seinni hálfleik. Stuttu síðar skoraði Þorleifur Úlfarssoon sitt fyrst amark fyrir Blika og munurinn orðinn aðeins eitt mark.
Blikar settu mikla pressu á Framara síðustu mínúturnar en tókst ekki að skora jöfnunarmarkið og magnaður sigur Fram staðreynd. Fram er í 3. sæti með 43 stig en Breiðablik er í 4. sæti með 30 stig.