Fotbolti.net
24.08.26 - 20:27
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fabinho til Trabzonspor (Staðfest)

Fabinho til Trabzonspor (Staðfest)
Canon

Mynd: Trabzonspor

Brasilíski miðjumaðurinn Fabinho er genginn til liðs við Trabzonspor á frjálsri sölu. Hann skrifar undir tveggja ára samning.

Fabinho er 32 ára en hann gengur til liðs við félagið frá Al-Ittihad. Hann gekk til liðs við sádi arabíska félagið frá Liverpool árið 2023 en yfirgaf félagið í sumar þegar samningurinn hans rann út.
Fabinho endurnýjar kynnin við Mohamed Salah sem gekk til liðs við Trabzonspor fyrr í sumar. Salah skoraði tvennu í öðrum deildarleik sínum fyrir liðið um helgina í 2-1 sigri á Basaksehir.

Salah og Fabinho voru saman hjá Liverpool frá 2018-2023. Þeir unnu úrvalsdeildina og Meistaradeildina saman hjá enska liðinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.