Fotbolti.net
25.09.15 - 20:55
Arnar Geir Halldórsson

Breytingar á Selfossi - Gunni Borgþórs tekur við körlunum (Staðfest)

Gunnar að störfum

Gunnar að störfum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Rafn Borgþórsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Selfoss. Hann mun jafnframt taka við starfi yfirmanns knattspyrnumála sem er ný staða hjá knattspyrnudeild félagsins.
Frá þessu er greint á Sunnlenska fréttavefnum en Gunnar stýrði bæði karla- og kvennaliði félagsins eftir að Zoran Miljkovic hætti störfum um mitt mót í sumar.

„Þetta er mjög spennandi starf og býður upp á marga kosti fyrir mig sem þjálfara. Hluti af því að ég taki við karlaliðinu er að auka samkenndina og samvinnuna í klúbbnum. Kvennaliðið er komið á frábæran stað og hefur náð góðum árangri með öflugri umgjörð og mögnuðu starfsfólki.

Ég fann það þegar karla- og kvennaliðin fóru að vinna saman í sumar að það var jákvætt fyrir deildina í heild sinni. Ég er mjög ánægður með að Selfoss sé að taka þetta skref því við ætlum okkur að verða flottasti klúbbur á landinu, ekki bara í kvennaboltanum,“
segir Gunnar.

Nýr þjálfari kvennaliðs Selfoss verður kynntur á næstu dögum.

Heimild: Sunnlenska

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.