25.09.15 - 13:03
Elvar Geir Magnússon
Úrslitaleikur HM í Katar verður í desember 2022 (Staðfest)

Framkvæmdir í Katar.

Mynd: Getty Images

Framkvæmdir í Katar.

Mynd: Getty Images
FIFA hefur ákveðið að HM 2022 í Katar verði spilað frá 21. nóvember til 18. desember og verði því spilað á 28 dögum. Úrslitaleikurinn verður leikinn á þjóðhátíðardegi Katar.
Gríðarlega umdeilt var þegar ákveðið var að halda mótið í landinu, meðal annars vegna þess steikjandi hita sem þar ríkir yfir sumartímann.
Nú er í fullri byggingu sérstakt HM-þorp í úthverfi Doha þar sem leikið verður en fjölmargir verkamenn hafa starfað og búið við hrikalegan aðbúnað á svæðinu og fjölmargir týnt lífi.
Ljóst er að ákvörðunin um að halda mótið yfir vetrartímann mun hafa í för með sér miklar breytingar á leikjaplani stærstu deilda Evrópu og víðar.