Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 25. september 2021 12:24
Brynjar Ingi Erluson
James og Shaw fóru meiddir af velli
Luke Shaw fór haltrandi af velli
Luke Shaw fór haltrandi af velli
Mynd: EPA
Ensku landsliðsmennirnir Luke Shaw og Reece James fóru meiddir af velli í fyrri hálfleik í hádegisleikjunum í ensku úrvalsdeildinni.

Shaw var í byrjunarliði Manchester United gegn Aston Villa í dag en fór meiddur af velli á 34. mínútu. Hann fékk högg á 26. mínútu en hélt leik áfram áður en hann neyddist til að biðja um skiptingu átta mínútum síðar.

Diogo Dalot kom inn fyrir Shaw en þetta gæti verið mikið áhyggjuefni fyrir United.

Reece James, hægri bakvörður Chelsea, þurfti þá að fara af velli vegna meiðsla á ökkla gegn Manchester City. Hann var í baráttunni við Jack Grealish í byrjun leiks. Tæpum tuttugu mínútum síðar kom Thiago Silva inná í hans stað.

Staðan er markalaus í hálfleik í báðum hádegisleikjunum.
Athugasemdir
banner
banner