Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 25. september 2022 18:25
Brynjar Ingi Erluson
Nökkvi opnaði markareikninginn í Belgíu
Nökkvi Þeyr Þórisson
Nökkvi Þeyr Þórisson
Mynd: Beerschot
Nökkvi Þeyr Þórisson, leikmaður Beerschot í Belgíu, skoraði fyrsta mark sitt fyrir félagið í dag í 4-0 sigri á Knokke í bikarnum.

Dalvíkingurinn gekk í raðir Beerschot frá KA í síðasta mánuði eftir að hafa skorað 17 mörk í Bestu deildinni í sumar.

Hann hefur verið hægt og rólega að koma sér inn í lið Beerschot og í dag skoraði hann fyrsta mark sitt fyrir félagið.

Nökkvi var í byrjunarliði félagsins í sigrinum á Knokke og gerði þriðja markið þegar rúmlega korter var eftir af leiknum. Beerschot skoraði eitt til viðbótar og vann leikinn 4-0.

Beerschot er því komið áfram í sjöttu umferð bikarsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner