Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mið 25. nóvember 2020 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Raiola segir EA Sports hafa hundsað sig í tíu ár
Mino Raiola, hinn skrautlegi umboðsmaður Zlatan Ibrahimovic, er ekki sáttur með tölvuleikjaframleiðandann EA Sports.

Zlatan og Raiola eiga í deilum við EA Sport vegna tölvuleiksins FIFA. Þeir segja fyrirtækið ekki vera með leyfi fyrir notkun á ímyndarrétti hans.

Zlatan er þar skráður í Milan og fær þar einkunnina 83. Framherjinn knái kannast þó ekki við að hafa gefið EA Sports leyfi fyrir notkun á ímyndarrétti hans, það er að segja nafni hans og andliti.

Raiola segir að EA Sports hafi hundsað sig í tíu ár.

„Þið hafið hundsað mig í tíu ár varðandi spurningar um ímyndarrétti. Kannski munið þið svara núna, eða gerist það bara fyrir dómstólum?" skrifar Raiola.

Gareth Bale, leikmaður Tottenham, hefur líka tjáð sig um málið en það gerist eftir að EA Sports tilkynnti samning við ensku ofurstjörnuna David Beckham. Hann mun þéna 40 milljónir punda á þremur árum.

Hér að neðan má sjá tíst Raiola.


Athugasemdir
banner
banner
banner