Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 25. nóvember 2021 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Ekkert gengur hjá Neymar
Neymar
Neymar
Mynd: EPA
Brasilíski sóknarmaðurinn Neymar hefur ekki skorað né lagt upp fyrir Paris Saint-Germain í síðustu sjö leikjum hans í Meistaradeild Evrópu.

Sóknarleikur PSG var ekki upp á marga fiska gegn Manchester CIty í gær. Liðið skoraði vissulega fyrsta mark leiksins í byrjun síðari hálfleiks en fyrir utan það var Manchester CIty með öll völd á leiknum.

Neymar var í byrjunarliði PSG og er yfirleitt erfiður viðureignar en tölfræðin í síðustu sjö leikjum hans í Meistaradeildinni er afar slök.

Hann hefur ekki komið að marki í þessum sjö leikjum, hvorki skorað né lagt upp.

Á síðasta tímabili skoraði hann sex mörk í keppninni og lagði upp þrjú. Í heildina hefur hann skorað 41 mark í keppninni fyrir Barcelona og PSG:
Athugasemdir
banner
banner
banner