Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 25. nóvember 2022 09:07
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Heimasíða KSÍ 
Janúarverkefni hjá Íslandi á Algarve - Leikið við Eistland og Svíþjóð
Dagur Dan Þórhallsson.
Dagur Dan Þórhallsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska landsliðið mun spila vináttulandsleiki við Eistland og Svíþjóð á Algarve í Portúgal í janúar.

Leikirnir verða hluti af æfingabúðum liðsins. Þrjú önnur lið verða við æfingar á svæðinu á sama tíma og leikur íslenska liðið við tvö þeirra, Eistland og Svíþjóð, en fjórða liðið er Finnland.

Fyrri leikurinn verður gegn Eistlandi 8. janúar á Estadio Nora og sá seinni á Estadio Algarve 12. janúar gegn Svíþjóð.

Ekki er um FIFA glugga að ræða og því má gera ráð fyrir að leikmannahópar liðanna komi að stórum hluta frá félagsliðum í viðkomandi deildum og að meginþorri leikmanna íslenska liðsins verði frá liðum í Bestu deildinni eða liðum á Norðurlöndunum.

Landslið karla sem var að mestu skipað leikmönnum úr Bestu deildinni lék fyrr í þessum mánuði tvo vináttuleiki sem báðir töpuðust með einu marki, gegn Sádi-Arabíu og Suður-Kóreu, tveimur liðum sem voru í lokaundirbúningi fyrir HM í Katar.

Leikirnir:
8.1.2023 Ísland - Eistland Estadio Nora
9.1.2023 Svíþjóð - Finnland Estadio Algarve
12.1.2023 Finnland - Eistland Estadio Nora
12.1.2023 Svíþjóð - Ísland Estadio Algarve
Athugasemdir
banner
banner
banner