Kolbeinn Þórðarson var í byrjunarliði Lommel SK sem mætti St. Gilloise á útivelli í belgísku B-deildinni. Aron Sigurðarson var í byrjunarliði St. Gilloise.
St. Gilloise náði forystunni þegar korter var liðið af leiknum. Lommel náði ekki að svara fyrir það í fyrri hálfleiknum og var staðan í hálfleik 1-0 fyrir St. Gilloise.
Kolbeinn, Jonathan Hendrickx og félagar komu beittari inn í seinni hálfleikinn. Þeir jöfnuðu á 52. mínútu og tóku síðan forystuna á 80. mínútu, þegar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Það var hins vegar ekki nóg fyrir sigur því Aron Sig og félagar jöfnuðu á 87. mínútu. Nokkuð svekkjandi fyrir Lommel.
Lokatölur 2-2. Bæði Kolbeinn og Aron spiluðu 90+ mínútur. Lommel er í þriðja sæti, einu stigi frá toppnum, og St. Gilloise í sjötta sæti, fjórum stigum frá toppnum.
Athugasemdir