Neil Critchley, þjálfari U23 ára liðsins hjá Liverpool, mun stýra liðinu gegn Shrewsbury Town er liðin mætast á Anfield í FA-bikarnum en enska úrvalsdeildin verður í sömu viku með vetrarfrí.
Shrewsbury og Liverpool gerðu 2-2 jafntefli er liðin mættust í bikarnum í kvöld en Jason Cummings reyndist hetja Shrewsbury með því að skora tvö mörk af bekknum.
Liðin þurfa því að mætast öðru sinni og að þessu sinni á Anfield en leikurinn er 4. eða 5. febrúar. Í sömu viku er enska úrvalsdeildin með vetrarfrí og ætlar Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, að virða það.
Því mun Critchley stýra liði Liverpool og þá verða leikmenn aðalliðsins ekki með.
Þetta er í annað sinn á tímabilinu sem Critchley mun stýra Liverpool en hann gerði það í enska deildabikarnum gegn Aston Villa í desember er Liverpool tók á sama tíma þátt í HM félagsliða.
Jurgen Klopp says that no senior players will be involved in the FA Cup fourth round replay and he won’t manage the team. Neil Critchley will be in charge #LFC
— James Pearce (@JamesPearceLFC) January 26, 2020
Athugasemdir