26.01.20 - 17:26
Brynjar Ingi Erluson
Lingard: Hef ekki verið upp á mitt besta

Jesse Lingard skoraði í dag

Mynd: Getty Images

Jesse Lingard skoraði í dag

Mynd: Getty Images
Jesse Lingard, leikmaður Manchester United, tókst að skora í 6-0 sigrinum á Tranmere Rovers í enska bikarnum í dag en hann hefur átt í erfiðleikum með að koma knettinum í netið síðasta árið.
Lingard skoraði í Evrópudeildinni fyrir United fyrr á leiktíðinni en í ensku úrvalsdeildinni hefur ekkert gengið að hjálpa liðinu. Hann hefur ekki skorað né lagt upp mark á þessu tímabili í deildinni.
Hann hefur svo sannarlega fengið tækifærin til þess en ekkert hefur gengið. Hann nýtti tækifærið gegn Tranmere í bikarnum í dag og skoraði en hann viðurkennir að vera ekki upp á sitt besta.
„Ég veit að ég hef ekki verið upp á mitt besta en það er alltaf gaman að skora og hjálpa liðinu," sagði Lingard.
„Það voru margir sem hjálpuðu til að ná í sigurinn og þetta var frábær frammistaða liðsins. Við vissum að þetta yrði erfitt en við kláruðum þetta," sagði hann ennfremur.