Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 26. janúar 2020 17:17
Brynjar Ingi Erluson
Maguire um fyrsta markið: Beðið lengi eftir þessu
Harry Maguire fagnar marki sínu
Harry Maguire fagnar marki sínu
Mynd: Getty Images
Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, var afar ánægður með 6-0 sigurinn á Tranmere Rovers í enska bikarnum í dag en hann segir að liðið hafi náð að venjast vallaraðstæðum.

Maguire skoraði og lagði upp í leiknum en leikurinn fór fram á Prenton Park, heimavelli Tranmere. Völlurinn er í afar slæmu ástandi en það kom þó ekki að sök hjá lærisveinum Ole Gunnar Solskjær.

United átti ekki í vandræðum með Tranmere og komust sex leikmenn á blað. Anthony Martial, Diogo Dalot, Jesse Lingard, Phil Jones og Mason Greenwood skoruðu einnig.

„Það var mikilvægt fyrir okkur að vinna þennan leik eftir að hafa spilað illa í tapi gegn Burnley. Við ætluðum að ná góðri frammistöðu fyrir stuðningsmennina og nú erum við komnir áfram í næstu umferð og það er nákvæmlega það sem við ætluðum okkur," sagði Maguire.

„Ég hef beðið lengi eftir þessu. Ég hef fengið nokkur tækifæri til að koma boltanum í netið en það er notalegt að geta hjálpað liðinu loksins í næstu umferð. Þetta var erfitt í dag en það var þannig fyrir bæði lið. Við náðum samt að venjast þessu og þurftum bara að halda boltanum niðri," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner