Fótbolti.net spjallaði við Ólaf Helga Kristjánsson, þjálfara FH, eftir 4-1 tap gegn Breiðabliki í lokaleik FH í Fótbolta.net mótinu.
Ólafur var spurður almennt út í gengi FH liðsins sem endaði með eitt stig í mótinu. Hann var einnig spurður út í leikmannamálin hjá FH.
Ólafur var spurður almennt út í gengi FH liðsins sem endaði með eitt stig í mótinu. Hann var einnig spurður út í leikmannamálin hjá FH.
Sjá einnig:
Óli Kristjáns: Við þurfum að kíkja á leikmannamálin
Hann var sérstaklega spurður út í Viktor Smára Segatta sem hefur æft með FH-ingum í vetur. Mun hann semja við FH?
„Hann hefur fengið að æfa með okkur FH-ingum og æfði með okkur fyrir jól, sneri sig aðeins á ökkla um daginn og hefur ekki verið með okkur upp á síðkastið en hann er að skoða okkur og við hann og svo eru aðrir möguleikar fyrir hann en það er ekkert í hendi," sagði Ólafur við Fótbolta.net
Athugasemdir