Bruce: Bielsa fannst við eiga meira skilið

Það hitnar undir Bruce.

Mynd: Getty Images

Það hitnar undir Bruce.

Mynd: Getty Images
Það er aldeilis pressa að myndast á Steve Bruce, knattspyrnustjóra Newcastle. Liðið tapaði í kvöld 2-1 gegn Leeds en frammistaðan var betri en það sem hefur sést frá liðinu á síðustu vikum.
„Þetta var besti leikur okkar í margar vikur. Ég er ánægður með frammistöðuna en svekktur að fá ekki neitt út úr leiknum," sagði Bruce eftir tapið í kvöld.
„Marcelo Bielsa (stjóri Leeds) hrósaði mínu liði. Honum fannst við eiga meira skilið og ég verð að vera sammála honum þar."
Newcastle hefur ekki unnið í síðustu 11 keppnisleikjum sínum og bara í deildinni hefur liðið náð í tvö stig í síðustu níu leikjum sínum.
„Það er enginn vafi á því að þetta var betra frá Newcastle. En þetta gat varla verið verra en síðustu vikur hafa verið," skrifaði Lee Ryder í skýrslu sinni um leikinn fyrir staðarmiðilinn Newcastle Chronicle.