Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. janúar 2021 21:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kjarnafæðismótið: Ásgeir með þrennu fyrir KA gegn KF
Ásgeir í leik með KA í fyrra.
Ásgeir í leik með KA í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA 6 - 0 KF
Mörk KA: Ásgeir Sigurgeirsson 3, Steinþór Freyr Þorsteinsson 2, Nökkvi Þeyr Þórisson,

KA valtaði yfir KF þegar liðin áttust við í Kjarnafæðismótinu í Boganum í kvöld.

KA-menn, sem spila í Pepsi Max-deildinni, reyndust of sterkir fyrir KF, sem er í 2. deild. Lokatölur voru 6-0 fyrir lærisveina Arnars Grétarssonar.

Ásgeir Sigurgeirsson fór á kostum í liði KA og skoraði þrennu. Steinþór Freyr Þorsteinsson gerði tvennu og var Nökkvi Þeyr Þórisson einnig á skotskónum. Það voru fjórtán ára gamlir strákar sem komu af bekknum í báðum liðum.

Þetta var fyrsti leikur KA í Kjarnafæðismótinu en KF vann 2-1 sigur á Þór 2 í fyrsta leik sínum í mótinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner