Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 26. janúar 2022 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Akureyri.net 
Boginn ekki nothæfur vegna slysahættu - Pólitískur slagur á Akureyri?
Það eru margar gildrur í Boganum og meiðsli eru algeng
Það eru margar gildrur í Boganum og meiðsli eru algeng
Mynd: KDN
Mynd: KDN
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Það vantar þak á Þórsvöll en þær framkvæmdir eru ekki komnar í farveg
Það vantar þak á Þórsvöll en þær framkvæmdir eru ekki komnar í farveg
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Knattspyrnudómarasfélags Norðurlands telur að knatthús Bogans sé ekki leikhæft til keppnisleikja en þetta kemur fram í skýrslu félagsins. Það er Akureyri.net sem greinir frá en þetta þykir mikið hitamál á Akureyri.

Íþróttafélagið Þór sér um daglegan rekstur hússins en KDN (Knattspyrnudómarafélag Norðurlands) tók úttekt á grasinu í Boganum og komst að þeirri niðurstöðu að grasið er ekki leikhæft.

Í skýrslunni kemur fram að margar slysahættur eru á gervigrasinu og að meiðsli séu alltof algeng en þar á bæði við um leikmenn og dómara.

„Nú er svo komið að slysagildrur eru orðnar margar á teppinu og meiðsli orðin alltof algeng í húsinu. Á það bæði við um leikmenn og dómara. Á þessu þarf að verða bót og er ástandið orðið slíkt að við teljum húsið vart leikhæft til keppnisleikja."

„Þór sér um daglegan rekstur hússins og hafa þeir talað fyrir daufum eyrum Akureyrarbæjar hvað varðar lagfæringar á vellinum,"
segja dómararnir en þetta kemur fram í frétt Skapta Hallgrímssonar á Akureyri.net.

KSÍ telur að það verði að taka skýrslu dómarafélagsins alvarlega og þarfnast grasið viðgerðar og það tafarlaust.

Viðgerð hefst í vikunni

Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfulltrúi Akureyrar og varaformaður fræðslu- og lýðheilsuráðs, sagði í viðtali við Akureyri.net í gær að viðgerðir hefjast strax í þessari viku en segir að bæjaryfirvöldum hafi borist þessar upplýsingar fyrir fáeinum dögum.

Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi Þórs, segir þetta ekki rétt og að bæjaryfirvöld hafi verið meðvituð um þetta allan tímann og eru margir mánuðir síðan óskað var eftir viðgerðum á núverandi skemmdum.

„Staðan í Boganum er slæm og hefur verið það í langan tíma. Akureyrarbær hefur vitað af stöðunni allan tímann og eru margir mánuðir síðan óskað var eftir viðgerðum á núverandi skemmdum á grasinu, ekki fáeinir dagar eins og haldið hefur verið fram. Húsið er fjársvelt þegar kemur að meiriháttar viðhaldi og þar hefur Íþróttafélagið Þór ekkert um málin að segja. Lýsingin í húsinu er það gömul að ekki er hægt að fá perur, netið í húsinu hífist ekki upp í rétta stöðu og svona mætti lengi telja."

„Risastóra málið er auðvitað grasið, forsvarsmenn Bogans hafa óskað eftir að þessu hættulega grasi og öllu undirlagi í Boganum verði skipt út næsta sumar. Áhugavert verður að sjá hvort bærinn taki jafn hratt og örugglega á því erindi eins og hann telur sig hafa gert í þessu máli varðandi skemmdirnar.

„Fyrir liggur að grasið er löngu úr sér gengið enda skv. óvísindalegri samantekt búið að nota það sem samsvarar sliti á 18 árum. Ekkert þýðir að segja að grasið eigi að endast í 8-10 ár, því þar er miðað við ákveðna notkunarstaðla – ákveðið margar klukkustundir og fjölda fólks á vellinum – sem grasið í Boganum fer langt framúr."

„Grasið hefur raunar verið til vandræða í 2-3 ár sökum galla í lagningu á því upphaflega. Límingar til dæmis illa úr garði gerðar sem veldur því að það er sífellt að rifna upp.

„Gúmmípúðinn (fjöðrunin) undir grasinu er ónýtur, sem veldur því að völlurinn er afar harður sem aftur eykur líklega líkur á skemmdum á grasinu en því miður og öllu alvarlegra, það veldur aukinni meiðslahættu. Til að mynda sleit ein allra efnilegasta knattspyrnukona landsins, leikmaður Þórs/KA, krossbönd í húsinu í fyrrasumar. Einnig sleit leikmaður meistaraflokks KA krossbönd í húsinu fyrir tæpum tveimur árum. Fjöldi vöðvatognana og eymsla í baki hefur gert vart við sig hjá iðkendum í húsinu.

„Ég er afar ánægður með að forsvarsmenn bæjarins telji sig hafa brugðist hratt við, en eitthvað þarf að athuga hvernig skilaboðin berast á milli fólks innan bæjarkerfisins því það var sannarlega ekki nýlega sem óskað var eftir viðgerðum á grasteppinu í Boganum. Það er alrangt. Mér finnst illa að okkur umsjónarmönnum hússins vegið þegar þessu er haldið fram, því halda mætti að okkur væri sama um ástandið og bærum öryggi iðkenda ekki fyrir brjósti,"
segir Jón Stefán í yfirlýsingu sinni.

Klúbbapólitík á Akureyri

Þórsarar eru gríðarlega ósáttir með ummæli Hildu sem færir ábyrgðina á Þór með orðum sínum í viðtali við Akureyri.net og liggja þar ýmsar kenningar á borði.

Akureyrabær samþykkti sjö milljarða uppbyggingu á íþróttamannvirkjum í bænum árið 2020 þar sem KA fær gervigrasvöll og stúku. Sú aðgerð er talin hljóða upp á einn og hálfan milljarð.

Þetta er sagt í forgangi hjá bæjarstjórn vegna þess hve mikið KA hefur stækkað sem félag. Þar kemur fram að KA sé nú með 1400 iðkendur á skrá eða helmingi fleiri en Þór. Tölur frá Íþróttabandalagi Akureyrar gefa þó aðra mynd og er KA þar aðeins með 150 fleiri iðkendur en Þór.

Í lokuðum hópi á Facebook er greint frá þessum upplýsingum og að KA hafi í raun logið til um iðkendafjölda og dregið upp þá fölsku mynd að félagið væri í brýnni þörf fyrir uppbyggingu á svæðinu.

Akureyrarbær hefur þá ekki lokið framkvæmdum við að setja upp nýtt þak á Þórsvelli en samið var um það í aðdragandanum að landsmóti UMFÍ sem haldið var á Akureyri árið 2009. Geir Þorsteinsson, fyrrum formaður KSÍ, hvatti Akureyrarbæ að ráðast í framkvæmdir á þaki yfir stúkuna sama ár, en nú þrettán árum síðar er ekkert þak komið á stúkuna á Þórsvelli.

Þá er einnig sagt á að KA eigi marga í embættismannakerfinu og sterka pólitíska fulltrúa sem vinna blygðunarlaust að því auka veg félagsins.

„Þeir stefna að því að í bænum verði aðeins eitt félag og þeir vinna skipulega að því markmiði og mér sýnist sú vinna ganga vel," er sagt í þessu hitamáli sem virðist ætla að vinda upp á sig.
Athugasemdir
banner
banner
banner