Íslenski unglingalandsliðsmaðurinn Orri Steinn Óskarsson skoraði annan leikinn í röð er danska liðið FCK vann Helsingör 3-2 í æfingaleik á mánudag.
Orri er 17 ára gamall og að stíga sín fyrstu skref með aðalliðinu en hann skoraði í fyrsta leik sínum gegn Hvidovre og var aftur á ferðinni gegn Helsingör.
Hákon Arnar Haraldsson sá um undirbúninginn að öðru marki Orra en hann tók skemmtilega rispu áður en hann stakk boltanum inn fyrir á Orra sem skoraði af stuttu færi.
Orri skoraði annað mark seint í leiknum og það aftur eftir undirbúning Hákons en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Það mark má sjá neðar í fréttinni en það virðist hafa verið rán um hábjartan dag.
U19-topscorer Orri Óskarsson scorede for anden kamp i træk i træningskampen mod @fchelsingor. Se scoringen på oplæg fra Hákon Haraldsson lige her 👏🏼🇮🇸 #fcklive #sldk pic.twitter.com/DNLKUpiV4p
— F.C. København (@FCKobenhavn) January 24, 2022
Athugasemdir