Þá er það ljóst hvaða lið mætast í 8-liða úrslitum Afríkukeppninnar en nokkrir risar eru þegar úr leik. Malí og Fílabeinsströndin voru bæði til alls líkleg en eru úr leik.
Tveir leikir eru á laugardag. Gambía mætir gestgjöfunum frá Kamerún á meðan Búrkína Fasó spilar við Túnis.
Þá er stórleikur Egyptalands og Marokkó á sunnudag á meðan Senegal spilar við Miðbaugs-Gíneu.
8-liða úrslit:
Laugardagur:
16:00 Kamerún - Gambía
19:00 Búrkína Fasó - Túnis
Sunnudagur:
16:00 Egyptaland - Marokkó
19:00 Senegal - Miðbaugs-Gínea
Athugasemdir