Tottenham fékk á þriðjudag Arnaut Danjuma á láni frá Villarreal út tímabilið. Kantmaðurinn var á leiðinni til Everton en á síðustu stundu tókst Tottenham að krækja í leikmanninn.
Kantmaðurinn er fyrsti leikmaðurinn sem Tottenham fær í glugganum. Hann átti gott síðasta tímabil, skoraði þá sextán mörk í 34 leikjum. Í ár hefur hann einungis skorað tvö mörk í tíu leikjum.
Kantmaðurinn er fyrsti leikmaðurinn sem Tottenham fær í glugganum. Hann átti gott síðasta tímabil, skoraði þá sextán mörk í 34 leikjum. Í ár hefur hann einungis skorað tvö mörk í tíu leikjum.
Samkvæmt spænska fjölmiðlinum Relevo er kaupákvæði í samningi Tottenham og Villarreal. Tottenham getur keypt Danjuma á 35 milljónir punda á meðan lánssamningnum stendur.
Danjuma verður 26 ára í lok mánaðar, hann er fæddur í Nígeríu en á að baki sex landsleiki fyrir Holland.
Athugasemdir