Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 26. febrúar 2021 13:35
Elvar Geir Magnússon
Klopp vill ekki tjá sig um Alisson
Alisson, markvörður Liverpool.
Alisson, markvörður Liverpool.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segist ekki hafa velt því fyrir sér hvort markvörðurinn Alisson spili gegn Sheffield United á sunnudaginn.

Sorg ríkir hjá Alisson og fjölskyldu hans. Faðir hans drukknaði í Brasilíu í vikunni en hann hafði farið að synda nálægt sumarhúsi sínu.

Klopp baðst undan því að ræða um þetta sorglega mál á fréttamannafundi í dag. Hann sagði að þetta væri einfaldlega ekki rétti tímapunkturinn.

Alisson er 28 ára brasilískur markvörður sem leikið hefur fyrir Liverpool síðan 2018.


Athugasemdir
banner
banner
banner