Ívar Örn Árnason ræddi við Fótbolta.net í vikunni um félagaskipti sín frá Breiðabliki til KA.
Ívar, sem er uppalinn hjá KA og var fyrirliði liðsins, var spurður hvernig honum litist á framtíðina hjá KA.
Hann sagði m.a. að hann teldi að breyta þyrfti módelinu hjá KA; að ábyrgðinni sem er á herðum framkvæmdastjóra félagsins, Sævars Péturssonar, yrði dreift á fleiri aðila.
Sævar var ráðinn framkvæmdastjóri félagsins í lok 2011.

„Mér finnst bara sumir hlutir sem þurfa kannski að fara breytast fyrir norðan. Sævar þarf kannski að fara læra dreifa álaginu, hann er að taka öllum höggum, er að taka allar ákvarðanir."
„Ég held að þetta sé ekkert svona í öðrum klúbbum á Íslandi í dag. Það er byrjað að dreifa álaginu, komnar fleiri stöður hjá félögunum og meiri mannskapur til að taka fleiri ákvarðanir og hafa fleiri augu á fleiri stöðum. Það er einhver þróun sem KA þarf að fara í jafnt og þétt."
„Ég veit að það er ekkert hægt að umturna öllu á einni nóttu, en það þarf að gera þetta hægt og rólega."
Þetta segir Ívar í viðtalinu sem má nálgast í heild sinni í hlekknum hér að ofan.
Athugasemdir