Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 26. mars 2020 17:15
Magnús Már Einarsson
Hægt að fá miðana gegn Rúmeníu endurgreidda til 6. apríl
Líka hægt að halda miðunum
Mynd: Eyþór Árnason
Miðakaupendur geta óskað eftir endurgreiðslu á miðum á leik Íslands og Rúmeníu í umspili undankeppni EM sem átti að fara fram í dag 26. mars, en frestur til þess er til og með mánudagsins 6. apríl.

Áætlað er að leikur Íslands og Rúmeníu í umspili fyrir EM A landsliða karla fari fram á Laugardalsvelli fimmtudaginn 4. júní nk.

Miðakaupendur sem vilja halda sínum miðum þurfa ekki að gera neitt og halda einfaldlega sínum upprunalegu miðum/sætum.

Miðakaupendur sem vilja fá miðana endurgreidda geta haft samband við KSÍ í tölvupósti á [email protected].
Athugasemdir
banner
banner