KA 1 - 2 Keflavík
1-0 Oliver Heiðarsson ('31 )
1-1 Davíð Helgi Aronsson ('42 )
1-2 Stefan Alexander Ljubicic ('60 )
Lestu um leikinn
1-0 Oliver Heiðarsson ('31 )
1-1 Davíð Helgi Aronsson ('42 )
1-2 Stefan Alexander Ljubicic ('60 )
Lestu um leikinn
Keflavík vann sinn fyrsta sigur í Bestu deild karla er liðið hafði betur gegn KA, 2-1, á Greifavellinum í kvöld. KA var þá að tapa fjórða leiknum sínum sem gerir þetta að einni verstu byrjun liðsins á þessari öld.
KA hafði aðeins náð í eitt stig í fyrstu þremur leikjunum, en það stig kom gegn ÍA í síðustu umferð.
Þeir byrjuðu leikinn betur gegn Keflavík, sem var einnig í leit að fyrsta sigrinum, en síðan komust Keflvíkingar betur inn í leikinn og átti Sindri Snær Magnússon tvær tilraunir á nokkrum mínútum sem höfnuðu báðar í stönginni.
Keflavík komið í ágætis gír en KA refsaði þeim fyrir að nýta sér ekki góðan kafla með marki á 31. mínútu. Jeppe Pederson kom boltanum inn fyrir á Oliver Heiðarsson sem fór framhjá Ásgeiri Orra Magnússyni og skoraði.
Þegar nokkrar mínútur voru eftir af hálfleiknum jöfnuðu Keflvíkingar og það verðskuldað er Davíð Helgi Aronsson potaði hornspyrnu Muhamed Alghoul í netið og fagnaði með því að taka handahlaup og afturábakk heljarstökk. Alvöru fagn hjá Davíð.
Gestirnir voru að ógna í síðari hálfleiknum og náðu inn gríðarlega mikilvægu marki er Stefan Alexander Ljubicic hljóp á sendingu Eiðs Orra Ragnarsson og gerði þriðja deildarmark sitt.
Stefan var hársbreidd frá því að bæta við öðru marki aðeins þremur mínútum síðar en þá tókst Samuel Kroon að bjarga á línu.
KA keyrði á Keflavík undir lokin. Oliver Heiðars komst nálægt því að jafna metin en setti skot sitt í stöngina eftir undirbúning Pedersen og þremur mínútum síðar vildi Oliver fá vítaspyrnu er Davíð Helgi steig inn í hann, en ekkert dæmt.
Lengra komust KA-menn ekki sem eru enn án sigurs eftir fjóra leiki á meðan Keflavík er komið með fyrsta sigurinn og er samtals með fjögur stig.
Agalegt hjá KA sem er enn einu sinni að eiga slaka byrjun á tímabilinu og slökustu byrjun síðan 2024, en þá tapaði liðið einmitt þremur af fyrstu fjórum leikjunum.
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. KR | 3 | 3 | 0 | 0 | 14 - 6 | +8 | 9 |
| 2. Víkingur R. | 3 | 2 | 1 | 0 | 6 - 3 | +3 | 7 |
| 3. Valur | 3 | 2 | 0 | 1 | 6 - 3 | +3 | 6 |
| 4. Stjarnan | 3 | 2 | 0 | 1 | 8 - 7 | +1 | 6 |
| 5. Þór | 3 | 2 | 0 | 1 | 5 - 6 | -1 | 6 |
| 6. Breiðablik | 3 | 1 | 2 | 0 | 2 - 1 | +1 | 5 |
| 7. Fram | 3 | 1 | 1 | 1 | 6 - 5 | +1 | 4 |
| 8. ÍA | 3 | 0 | 2 | 1 | 4 - 5 | -1 | 2 |
| 9. KA | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 - 6 | -3 | 1 |
| 10. Keflavík | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 - 6 | -3 | 1 |
| 11. FH | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 - 7 | -4 | 1 |
| 12. ÍBV | 3 | 0 | 1 | 2 | 4 - 9 | -5 | 1 |




