Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   sun 26. apríl 2026 23:40
Brynjar Ingi Erluson
Elías Rafn hélt hreinu í titilbaráttuslag
Mynd: EPA
Elías Rafn Ólafsson, markvörður Midtjylland og íslenska landsliðsins, hélt hreinu í markalausu jafntefli gegn AGF í titilbaráttuslag í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Landsliðsmaðurinn er að eiga ótrúlegt tímabil með Midtjylland, en hann var að halda hreinu í sautjánda sinn.

FotMob gefur honum 8 í einkunn fyrir frammistöðuna gegn AGF og var aðeins einn maður betri en hann á vellinum, en það var markvörður andstæðinganna.

Elías hefur haldið hreinu í átta deildarleikjum, átta Evrópuleikjum og einum bikarleik á tímabilinu.

Hann er stór ástæða þess að Midtjylland sé í harðri titilbaráttu í ár og hjálpuðu þessi úrslit heilmikið. Þau halda Midtjylland á toppnum á markatölu þegar þrjár umferðir eru eftir á meðan AGF er í öðru sæti.

Midtjylland mætir Viborg, Nordsjælland og Bröndby í síðustu þremur umferðunum og þar á milli kemur einnig bikarúrslitaleikur gegn FCK. Þétt dagskrá framundan hjá Elíasi sem heldur síðan með landsliðinu til Japans og Bandaríkjanna í lok maí.
Slapp
banner
banner
banner