Chelsea 1 - 0 Leeds
1-0 Enzo Fernandez ('23 )
1-0 Enzo Fernandez ('23 )
Chelsea er komið í úrslit enska bikarsins eftir sigur á Leeds í undanúrslitum á Wembley í dag.
Leeds fékk aukaspyrnu rétt fyrir utan teig Chelsea strax á fyrstu mínútu en Ao Tanaka skaut yfir.
Brenden Aaronson var nálægt því að koma Leeds yfir eftir stundafjórðung þegar hann slapp einn í gegn en Robert Sanchez varði vel frá honum.
Chelsea fékk góð færi í kjölfarið og Enzo Fernandez braut ísinn þegar hann skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Pedro Neto.
Það var ljóst að Chelsea menn voru vel gíraðir í fyrri hálfleik eftir að Liam Rosenior var látinn taka pokann sinn eftir skelfilegt gengi undanfarið.
Chelsea hélt áfram að þjarma að marki Leeds í upphafi seinni hálfleiks en tókst ekki að bæta við. Leeds tók við sér og Dominic Calvert-Lewin fékk upplagt tækifæri til að jafna metin en hann skallaði boltanum beint í fangið á Sanchez.
Leeds reyndi langt innkast í blálokin en Chelsea kom boltanum frá og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum gegn Man City á Wembley þann 16. maí.



