Spænski miðjumaðurinn Pablo Barrios verður ekki með Atlético Madríd gegn Arsenal í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Barrios, sem er mikilvægur hlekkur í liði Atlético, meiddist í 3-2 sigri á Athletic um helgina.
Félagið staðfesti á heimasíðu sinni að hann hafi hlotið meiðsli í vöðva aftan í læri og segir Marca að þar hafi Atlético staðfest það sem haldið var í fyrstu, að hann verði frá næsta mánuðinn.
Þetta þýðir að hann verður ekki með í báðum undanúrslitaleikjunum gegn Arsenal í Meistaradeildinni.
Barrios er 22 ára gamall miðjumaður sem hefur spilað 35 leiki með Atlético á tímabilinu og á 4 A-landsleiki fyrir Spánverja.
Fyrri leikurinn gegn Arsenal er spilaður á miðvikudag en seinni leikurinn er síðan leikinn í næstu viku.


