Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   sun 26. apríl 2026 15:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sanchez þóttist vera meiddur - Leedsarar mjög pirraðir
Úr leiknum í dag
Úr leiknum í dag
Mynd: EPA
Chelsea er marki yfir þegar skammt er til loka leiksins gegn Leeds í undanúrslitum enska bikarsins.

Leeds hefur sett góða pressu á Chelsea í seinni hálfleik en Enzo Fernandez skoraði eina mark leiksins til þessa um miðjan fyrri hálfleikinn.

Chelsea náði að róa leikinn niður þegar Robert Sanchez, markvörður liðsins, virtist fá skilaboð frá bekknum að setjast niður og fá aðhlynningu.

Þá fékk Calum McFarlane, bráðabirgðastjóri Chelsea, tækifæri til að taka smá leikhlé sem fór illa í stuðningsmenn, leikmenn og þjálfara Leeds og leikmenn og þjálfarar létu óánægju sína í ljós gagnvart Chelsea-mönnum og það urðu einhverjar smávægilegar stimpingar í kjölfarið.


Slapp
banner
banner
banner