Það er allt klárt fyrir 16-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna, en sex lið komust áfram í dag og mæta Bestu deildarliðin tíu síðan til leiks í næstu umferð, en dregið verður á næstu dögum.
FHL, ÍA, Keflavík, Selfoss og Tindastóll verða fulltrúar Lengjudeildarinnar í ár á meðan Fylkir, sem varð Lengjubikarsmeistari í C-deild, verður eini fulltrúinn úr 2. deild.
Ríkjandi bikarmeistarar Breiðabliks koma inn í 16-liða úrslitum ásamt öllum hinum félögunum úr Bestu deildinni.
Dregið verður í höfuðstöðvum KSÍ á næstu dögum.
Þessi lið eru í pottinum:
Breiðablik
FH
FHL
Fram
Fylkir
Grindavík/Njarðvík
ÍA
ÍBV
Keflavík
Selfoss
Stjarnan
Tindastóll
Valur
Víkingur R.
Þór/KA
Þróttur R.



