Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 26. maí 2018 05:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Meistaradeildin í dag - Úrslitaleikurinn í opinni dagskrá
Tekst Liverpool að koma í veg fyrir það að Real Madrid vinni Meistaradeildina þriðja árið í röð?
Tekst Liverpool að koma í veg fyrir það að Real Madrid vinni Meistaradeildina þriðja árið í röð?
Mynd: Getty Images
Í kvöld er komið að einum stærsta leik ársins þegar úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu fer fram í Kænugarði.

Eins og flestir vita eru það Real Madrid og Liverpool sem leika til úrslita í ár en Real Madrid hefur titil að verja en þeir hafa unnið þessa keppni síðustu tvö ár, síðasti sigur Liverpool í Meistaradeildinni kom árið 2005.

Real Madrid hafði betur gegn Bayern Munchen í undanúrslitunum, samanlagt 4-3. Liverpool sigraði hins vegar Roma samanlagt, 7-6.

Flautað verður til leiks í úrslitaleik Real Madrid og Liverpool í Meistaradeild Evrópu klukkan 18:45 en dómari leiksins kemur frá Serbíu og heitir Milorad Mazic.

Stöð 2 Sport sýnir leikinn í beinni en hann á að vera í opinni dagskrá.

Laugardagur 26. maí - Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu
18:45 Real Madrid - Liverpool (Stöð 2 Sport)

Sjá einnig:
Enska hringborðið - Lokauppgjör og upphitun fyrir risaleiki
Líkleg byrjunarlið Real Madrid og Liverpool
Láttu vaða - Ertu klár fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar?
Landsliðsmenn spá í úrslitaleik Liverpool og Real Madrid
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner