Serbneski sóknarmaðurinn Luka Jovic er gríðarlega eftirsóttur um þessar mundir og greindi Sky Sports frá því fyrir tíu dögum að Eintracht Frankfurt hafði samþykkt 60 milljón evra tilboð frá Real Madrid í leikmanninn.
Jovic vill þó frekar spila í enska eða ítalska boltanum því hann telur að leikstíllinn þar henti sér betur.
„Eftir að hafa spilað gegn Chelsea og Inter í Evrópudeildinni finnst mér eins og leikstíllinn þeirra henti mér vel. Ég held að Úrvalsdeildin eða Serie A henti mér best," sagði Jovic.
Sóknarmaðurinn er 21 árs gamall og er búinn að skora 25 mörk í 43 leikjum á tímabilinu. Þar af gerði hann 8 mörk í 11 Evrópudeildarleikjum.
Athugasemdir