Fotbolti.net
26.05.20 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Atalanta ætlar að fá Perin

Mattia Perin

Mattia Perin

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Atalanta ætlar að styrkja markvarðstöðuna í sumar og fá Mattia Perin frá Juventus en þetta kemur fram á Calciostyle.it.
Pierlugi Gollini er aðalmarkvörður Atalanta en hann gæti verið á förum í sumar.

Atalanta er tilbúið að selja hann á 25 milljónir evra og ætlar félagið að fá Perin frá Juventus.

Perin er á láni hjá Genoa út leiktíðina en ljóst er að hann á enga framtíð hjá Juventus og er hann falur fyrir um það bil 10 milljónir evra.

Perin gekk til liðs við Juventus árið 2018 frá Genoa og átti hann að berjast um stöðuna við Wojicech Szczesny. Gianluigi Buffon sneri hins vegar aftur til félagsins var Perin því lánaður aftur til Genoa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.