Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 26. maí 2020 12:30
Magnús Már Einarsson
Guardiola ánægður með formið á sínum mönnum
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, er ánægður með formið á leikmönnum sínum eftir rúmlega tveggja mánaða pásu frá skipulögðum æfingum.

Lið í ensku úrvalsdeildinni byrjuðu að æfa saman í litlum hópum í síðustu viku og stefnt er á að gefa út dagsetningu á nýju upphafi deildarinnar síðar í þessari viku.

„Þeir voru spenntir fyrir því að koma og æfa saman aftur og gera það sem þeim finnst skemmtilegt," sagði Guardiola um leikmenn sína.

„Þeir komu til baka á fullkominn hátt," sagði Guardiola um form leikmanna.

„Við fylgjum reglunum og leiðbeiningum á æfingum. Við verðum að gera það. Það er mikilvægast. Við ætlum ekki að gera eitthvað öðruvísi."
Athugasemdir
banner
banner