Fotbolti.net
26.05.21 - 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalska deildin

Conte hættur hjá Inter (Staðfest)

Búið spil

Búið spil

Canon

Mynd: Getty Images

Antonio Conte hefur náð samkomulagi við Inter um að hann geti hætt störfum sem stjóri félagsins tafarlaust.

Conte tók við Inter sumarið 2019 og tryggð félaginu sinn fyrsta titil í tíu ár nú í vor. Síðasta vor kom hann liðinu í úrslitaleik Evrópudeildarinnar en sá leikur tapaðist.
Félagið á í fjárhagsörðugleikum og stefnir í að það þurfi að draga saman seglin og selja sína bestu menn.

Það var Conte verulega ósáttur við og leitaðist eftir því að fá að hætta störfum hjá félaginu. Inter mun greiða Conte rúmlega helminginn af þeim launum sem hann átti að fá á næsta tímabili eða sjö milljónir evra.

Það er Fabrizio Romano, félagsskiptasérfræðingurinn, sem greinir frá þessu á Twitter í dag. Simone Inzaghi og Max Allegri eru sagðir á lista Inter yfir mögulega arftaka Conte.

Uppfært 18:35: Inter hefur staðfest tíðindin.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+318
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce11-1010
15Fiorentina11-89
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.