Neymar, leikmaður Paris Saint-Germain, vill ekki yfirgefa félagið í sumar en þetta segir hann í viðtali við OhMyGoal.
Þessi þrítugi sóknarmaður skrifaði undir nýjan samning við PSG á síðasta ári og er samningsbundinn næstu þrjú árin. Hann á svo sjálfur möguleika á því að framlengja um annað ár.
Neymar hefur komið að 160 mörkum í 144 leikjum með PSG en franskir fjölmiðlar hafa greint frá því að hann sé að öllum líkindum á förum í sumar.
Brasilíumaðurinn hefur ekki mikinn áhuga á því og ætlar sér að vera áfram.
„Það er rétt að ég vil vera áfram hjá Paris Saint-Germain. Það er enginn búinn að segja eitthvað annað við mig," sagði Neymar.
Neymar kom til PSG frá Barcelona árið 2017 fyrir metfé eða 222 milljónir evra.
Athugasemdir