Fotbolti.net
26.07.20 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Conte um Messi: Ekki einu sinni á leið til Inter í draumaliðsdeildinni

Conte um Messi: Ekki einu sinni á leið til Inter í draumaliðsdeildinni
Canon

Mynd: Getty Images

Antonio Conte, þjálfari Inter, útilokar að argentínski snillingurinn Lionel Messi sé á leið til félagsins fyrir næstu leiktíð.
Messi er 33 ára gamall og af mörgum talinn besti knattspyrnumaður sögunnar. Hann hefur spilað fyrir Barcelona allan ferilinn og skorað 633 mörk í 729 leikjum. Ótrúlegar tölur.

„Orðrómurinn sem segir Leo Messi vera á leið til Inter er algjör uppspuni. Ekki treysta þessum fake news. Hann er ekki á leið til Inter, ekki einu sinni í draumaliðsdeildinni," svaraði Conte þegar hann var spurður út í málið.

Inter er í öðru sæti ítölsku deildarinnar sem stendur en á litla sem enga möguleika á að ná toppliði Juventus, sem getur tryggt sér níunda Ítalíumeistaratitilinn í röð með sigri gegn Sampdoria í kvöld.

Inter hefur verið að fá til sín hágæðaleikmenn að undanförnu eftir að menn á borð við Romelu Lukaku og Christian Eriksen voru keyptir til félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.