Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 26. júlí 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Adam Johnson tekinn saman við fyrrverandi
Johnson og Stacey Flounders.
Johnson og Stacey Flounders.
Mynd: Getty Images
Slúðurblöðin á Englandi segja frá því að Adam Johnson sé núna tekinn aftur saman við Stacey Flounders.

Johnson losnaði úr fangelsi 2019 eftir að hann var dæmdur í sex ára fangelsi þremur árum áður fyrir að tæla og snerta fimmtán ára stelpu kynferðislega þegar hann var leikmaður Sunderland. Stelpan var aðdáandi Johnson og Sunderland.

Johnson sat inni í þrjú ár. Hann á 12 A-landsleiki að baki fyrir England og 27 fyrir yngri landsliðin.

Honum hefur ekki tekist að endurlífga fótboltaferil sinn. Það er mjög erfitt fyrir hann að gera það eftir að hafa fengið þann dóm.

Flounders hætti með Johnson þegar hann var dæmdur, en núna er hún búin að fyrirgefa honum og þau aftur tekin saman. Samkvæmt Mirror þá eiga þau von á sínu öðru barni.

Vinur Johnson segir að nýr kafli sé hafinn í þeirra lífi og þau gætu ekki verið ánægðari. Þau séu núna að íhuga að flytja frá Bretlandi og hefja nýjan kafla í öðru landi.
Athugasemdir
banner
banner