90min.com greinir frá því að Manchester United sé tilbúið að hleypa Phil Jones frá félaginu í sumar.
Jones megi fara á frjálsri sölu þrátt fyrir að vera samningsbundinn í tvö ár til viðbótar. United myndi spara í launagreiðslum og Jones er ekki í plönum félagsins sem er að krækja í Raphael Varane frá Real Madrid.

Jones hefur ekki spilað með United frá því í janúar á síðasta ári þegar hann spilaði gegn Tranmere í bikarnum. Newcastle er sagt hafa áhuga og er Steve Bruce, stjóri Newcastle, er sagður hrifinn af miðverðinum.
Annað leikmannaslúður tengt United tengist Anthony Martial því Daily Star greinir frá því að Tottenham hafi áhuga á Martial. United er með 50 milljón punda verðmiða á franska framherjanum.
Athugasemdir