26.08.15 - 19:00
Arnar Geir Halldórsson
Lucas Digne til Roma (Staðfest)

Lucas Digne er nýjasti leikmaður Roma

Mynd: Getty Images

Lucas Digne er nýjasti leikmaður Roma

Mynd: Getty Images
Vinstri bakvörðurinn Lucas Digne er genginn til liðs við AS Roma frá PSG.
Digne er lánaður til eins árs frá PSG til að byrja með en Roma hefur möguleika á að kaupa hann þegar lánstímanum lýkur.
Roma borgar tvær og hálfa milljón evra fyrir þennan 22 ára franska landsliðsmann sem var á dögunum orðaður við Liverpool.
Digne þekkir vel til Rudi Garcia, þjálfara Roma, en hann gaf honum eldskírn í franska boltanum þegar Digne var aðeins 18 ára gamall. Þá unnu þeir saman hjá Lille.