26.08.26 - 16:57
Elvar Geir Magnússon
Evrópubikarinn: FH gerði góða ferð til Kýpur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Apollon Ladies 0 - 2 FH
0-1 Helena Errington ('37 )
0-2 Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir ('43 )
Lestu um leikinn

FH gerði góða ferð til Kýpur í fyrri viðureign sinni gegn Apollon Ladies í 1. umferð Evrópubikars kvenna. FH náði sér í tveggja marka forystu fyrir seinni leikinn sem verður eftir viku í Kaplakrika.
Apollon Ladies varð kýpverskur meistari í 16. sinn á síðasta tímabili og hefur unnið meistaratitilinn sex ár í röð.
Helena Errington kom FH yfir á 37. mínútu eftir undirbúning Ingibjargar Magnúsdóttur. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir skoraði svo annað mark á markamínútunni miklu.
FH átti sjö marktilraunir í leiknum gegn sex frá heimakonum en voru öflugri í sinni nýtingu og unnu 2-0 útisigur. Kvennalið FH því með sigur í sínum fyrsta Evrópuleik.
Evrópubikar kvenna er B-deildin í Evrópukeppnum kvenna en Meistaradeildin er að sjálfsögðu A-deildin. Evrópubikarinn er leikinn sem útsláttarkeppni allt fram að úrslitaleik.