Ansi fyndið atvik átti sér stað í gær er Mattia Destro skoraði mark fyrir Genoa í efstu deild Ítalíu, Serie A í leik gegn Verona.
Destro skoraði þriðja mark Genoa í þessum leik og kom liðinu í 3-2 þegar fimm mínútur voru eftir.
Þetta mark framherjans dugði hins vegar ekki til en Nikola Kalinic jafnaði síðar metin í uppbótartíma.
Destro skoraði markið er hann hélt á vatnsflösku en hann hafði fengið sér vatn stuttu áður en boltinn barst til hans.
Undirritaður man ekki eftir svipuðu atviki en Destro kláraði færið af stakri stilld og vippaði boltanum yfir markvörð Verona.
Þetta má sjá hér.
You think you’ve seen it all in football and then Mattia Destro scores a goal with a bottle of water in his hand pic.twitter.com/xz75MgL27I
— Elliot Hackney (@ElliotHackney) September 25, 2021
Athugasemdir