Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 26. október 2020 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Grindavík fær ungan leikmann frá KA - Frændi Óðins Árnasonar
Mynd: Grindavík á Facebook
Freyr Jónsson, miðjumaður fæddur árið 2000, er genginn til liðs við Grindavík eftir að hafa komið upp í gegnum yngri flokka KA á Akureyri.

Freyr er fluttur á höfuðborgarsvæðið og hefur staðið sig vel á æfingum með Grindavík síðustu vikur.

„Hann verður gjaldgengur með liðinu á næstu leiktíð og verður spennandi að fylgjast með framtíð þessa unga leikmanns," segir í Facebook færslu Grindavíkur.

„Freyr er náskyldur Óðni Árnasyni, fyrrum leikmanni Grindavíkur, og standa vonir til að Freyr verði okkur Grindvíkingum happafengur líkt og frændi hans var á sínum tíma.

„Velkominn til Grindavíkur, Freyr!"


Grindavík leikur í Lengjudeildinni og mun vera þar áfram á næsta ári. Liðið er í fjórða sæti sem stendur og á ekki möguleika að komast upp í efstu deild.
Athugasemdir
banner
banner
banner