mán 26. október 2020 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Zidane um Isco: Hann er metnaðarfullur
Mynd: Getty Images
Myndband af Isco vakti athygli um helgina þar sem hann var ónotaður varamaður á bekk Real Madrid í sigri gegn Barcelona.

Notaður var varalesari til að greina hvað átti sér stað í samtalinu en Isco kvartaði undan litlum spiltíma á tímabilinu.

Zidane var spurður út í ummæli Isco og virtist ekki ósáttur með miðjumanninn.

„Þetta er gott merki, þetta sýnir að hann hefur metnað og vill spila. Fótboltamenn vilja spila fótbolta, það er undir þeim komið að vera tilbúnir þegar það kemur að þeim. Þannig hefur það alltaf verið hjá Real Madrid," sagði Zidane.

Sjá einnig:
Isco gagnrýndi Zidane á bekknum hjá Real Madrid
Athugasemdir
banner
banner
banner