Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 26. nóvember 2020 18:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kristófer Jónsson til Vals (Staðfest)
Mynd: Valur
Valur hefur keypt Kristófer Jónsson frá Haukum. Þetta staðfestir Valur á fésbókarsíðu sinni.

Kristófer er sautján ára gamall og á að baki 24 meistaraflokksleiki fyrir Hauka.

Hann á einnig 10 leiki með U16 og U17 ára landsliðum Ísland og í þeim skoraði hann eitt mark.

Kristófer er fyrsti leikmaðurinn sem Valur fær í sínar raðir eftir að liðið varð Íslandsmeistari á liðnu tímabili.

Valur - Komnir/Farnir

Komnir
Kristófer jónsson frá Haukum

Farnir
Aron Bjarnason til Ujpest (Var á láni)
Einar Karl Ingvarsson í Stjörnuna
Kasper Högh til Randers (Var á láni)

Samningslausir
Lasse Petry
Athugasemdir
banner
banner
banner