Fotbolti.net
26.11.21 - 19:00
Victor Pálsson

Xavi vill að Roberto fái nýjan samning

Xavi vill að Roberto fái nýjan samning
Canon

Mynd: EPA

Xavi, nýr þjálfari Barcelona, vill sjá félagið gefa landa sínum Sergi Roberto nýjan samning og það sem fyrst.
Það er Sport á Spáni sem greinir frá þessu en Roberto verður samningslaus næsta sumar og má því ræða við ný félög í janúar.

Margir stuðningsmenn Barcelona hafa kvartað yfir frammistöðu Roberto sem getur spilað bæði í bakverði sem og á miðjunni.

Þessi 29 ára gamli leikmaður er hins vegar algjörlega inni í myndinni hjá Xavi sem tók við af Ronald Koeman á dögunum.

Hvort Xavi muni nota Roberto í bakverði eða á miðjunni er óljóst en hann mun klárlega hjálpa þegar kemur að breidd í leikmannahópnum.

Samkvæmt þessum fregnum hefur Xavi rætt við stjórn spænska liðsins og vill að Roberto fái samningstilboð á næstu vikum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.