Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 26. nóvember 2022 09:45
Aksentije Milisic
Man Utd vill fá Depay - Mount hafnar nýjum samning
Powerade
Aftur til Man Utd?
Aftur til Man Utd?
Mynd: Getty Images
Mason Mount.
Mason Mount.
Mynd: EPA
Man Utd fylgist með Diaby.
Man Utd fylgist með Diaby.
Mynd: Getty Images
Traore.
Traore.
Mynd: EPA

Depay, Mount, Endrick, Winks, Iwobi, Diaby og Arnautovic eru í slúðurpakka dagsins. BBC tók allt það helsta saman.
________________________


Manchester United er að skoða það að fá Memphis Depay (28) aftur til liðsins en hann mun mögulega rifta samningi sínum hjá Barcelona. (Sky Germany)

Mason Mount, 23 ára miðjumaður Chelsea, hafnaði tilboði frá félaginu um nýjan samning en Chelsea bauð honum laun se hljómuðu upp á yfir 200 þúsund pund á viku. (Mail)

Chelsea og Real Madrid berjast áfram um hinn 16 ára gamla framherja Palmeiras, Endrick, þrátt fyrir að PSG hafi gert tilboð í kauða. (Fabrizio Romano)

Sampdoria mun mögulega senda Harry Winks (26) aftur til Tottenham, fyrr en áætlað var. Winks er á láni hjá Sampdoria en hann hefur ekki enn spilað leik fyrir liðið vegna meiðsla. (Calciomercato)

Joao Felix, leikmaður Atletico Madrid, vill yfirgefa spænska félagið og hefur þessi 23 ára gamli leikmaður beðið umboðsmann sinn um að finna nýtt félag fyrir sig. (Marca)

Alex Iwobi, leikmaður Everton, mun skrifa undir nýjan þriggja og hálfs árs samning við þá bláklæddu en hann mun fá 100 þúsund pund í vikulaun. (Sun)

Everton ætlar að leyfa Yerry Mina og Abdoulaye Doucoure að yfirgefa félagið í janúar glugganum. (GiveMeSport)

Enska úrvalsdeildin mun ekki fara sömu leið og verið að gera á HM með uppbótartímann í leikjunum. Uppbótartíminn í leikjum á HM hefur verið mjög langur, eitthvað sem hafði ekki þekkst áður. (Mail)

Manchester United fylgist með leikmanni Bayer Leverkusen, Moussa Diaby (23) og gæti félagið gert tilboð í leikmanninn. (Fichajes)

Formaður Bologna segir að Marko Aurnatovic, sem var mikið orðaður við Manchester United síðasta sumar, sé alls ekki til sölu. (Sky Sport Italia)

West Ham er tilbúið í að selja Vladimir Coufal í janúar og vill félagið fá sex milljónir punda fyrir þennan þrítuga leikmann. (Football Insider)

Xavi Hernandez, þjálfari Barcelona, hefur beðið félagið um að framlengja samning Sergio Busquets um eitt ár. Busquets er 34 ára gamall. (Sport)

Real Betis hefur áhuga á að fá Adama Traore til liðsins frá Wolves en þessi 26 ára leikmaður er að renna út af samning eftir tímabilið hjá Úlfunum. (Gazzetta)

Napoli hefur einnig áhuga á að fá Traore á frjálsri sölu næsta sumar. (Gazzetta)

Kolo Toure (41), fyrrverandi varnarmaður Arsenal, hefur samþykkt að taka við Championship liðinu Wigan og skrifa undir þriggja og hálfs árs samning. (Football Insider)


Athugasemdir
banner